Tölvuleikjakynslóðin lækkar í greind

Þegar ég þreytti samræmd próf árið 1997 þá var engin helvístis miskun, stærðfræði prófið var helþungt. Menn svitnuðu í lófum, milli herðablaða, sáu ofsjónir, klóruðu sér í exemi og allskonar. Hinir meðalgreindu fengu 1-3 í einkunn og þeir sem rétt slefuðu yfir meðalgreind fengu 4,5 sem dugði.

Þá var líka hægferð, miðferð og hraðferð og allir gátu fengið að svamla í gegnum þetta mishratt í skólanum. En það var engu sleppt, góð kona sá um það hún Jóhanna Kristjáns. Harðasti kennari sem hefur reykt tvo pakka á dag af London Docks vindlum fyrir hádegi sem nokkur krakki hefur séð. 

Íslenskuspurningin sem var felld niður hefur líklega verið á þessa leiðina: "Skrifaðu sms í þátíð þar sem þú þakkar foreldrum þínum fyrir að vera aldrei heima fyrir vegna lífsgæða kapphlaupsins sem hefur gert þig að minna en meðalgreindum mannapa".

Mér var komið í gegnum samræmdu prófin með hjálp foreldra minna sem greiddu þeim sem fóru yfir prófin 150.000.- fyrir hvert próf og ég fékk 7,25 í öllu. Verst að það var ekki afgangur fyrir menntaskóla prófunum...

 

Kv Stormur

 


mbl.is Þrjú dæmi felld úr stærðfræðiprófi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Landfari

Fyrirsögnin þín passar nú ekki alveg við könnun sem gerð var fyrir nokkru. Man ekki betur en að þar hefði komið fram að þeir sem stunduðu tölvuleiki gengi síst verr í skólanum.

Landfari, 7.10.2011 kl. 10:23

2 Smámynd: Steingrímur Jón Valgarðsson

Þeir s.s gátu stafað nafnið sitt. heheheh!

Steingrímur Jón Valgarðsson, 7.10.2011 kl. 11:23

3 Smámynd: Ólafur Gíslason

Þú hefur vonandi einhvern tímann verið ung(ur) og efnileg(ur), nú ertu hvorugt, bara hrokafull(ur) og heimsk(ur)

Ólafur Gíslason, 7.10.2011 kl. 11:38

4 Smámynd: Steingrímur Jón Valgarðsson

heheheh! já Ólafur minn þetta þróast bara svona. Og þú varst einu sinni grannur :)

Kv Stormur

Steingrímur Jón Valgarðsson, 7.10.2011 kl. 11:45

5 Smámynd: Pétur Sveinsson

Já ég tók samræmduprófin líka 97 og það er sko enginn lýgi að þau voru þung. Í fréttum næstu daga var um rætt að stærðfræðin hefði aldrei verið jafn þung, yfir 70% prófsins var algebra og mun fleiri féllu en náðu. Af þeim +70 sem voru í 10. bekk, féllu yfir 50 manns. Það segir margt. Já og í þá daga lágu fólk ekki eins mikið i tölvum eða fyrir framan sjónvarpið eins og í dag...prófið var bara FÁRÁNLEGT;)

Giggedy:)

Pétur Sveinsson, 7.10.2011 kl. 12:21

6 Smámynd: Steingrímur Jón Valgarðsson

Word, Pétur! Prófin voru helþung þarna á síðustu öld!

Kv Stormur

Steingrímur Jón Valgarðsson, 7.10.2011 kl. 12:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband